2018 · Nafnið
Norskar rætur, íslenskt handverk
Nafnið Hovdenak á rætur að rekja til Molde í Noregi, þaðan sem fjölskyldan kemur. Hovdenak Distillery var stofnað í Hafnarfirði árið 2018 og sameinar norska arfleifð og íslenskt hráefni.
Upphafið
Frá tilraunum til verðlaunavöru
Stuðlaberg Gin, fyrsta vara fyrirtækisins, varð til eftir margra ára tilraunir og þróun – bæði á uppskriftum og á vélbúnaði sem enn er notaður við framleiðsluna í dag.
Fólkið
Lítið fjölskyldufyrirtæki
Hovdenak Distillery er rekið af Hákoni Hovdenak og Brynju Hjaltalín. Hákon stýrir verksmiðjunni og framleiðslunni en Brynja markaðs- og sölumálum.
Eimingarhúsið
Hannað og smíðað af okkur
Eimingarhúsið okkar er háþróað og sjálfvirkt – og að stórum hluta hannað og smíðað af Hákoni sjálfum. Eimað er við lofttæmi, svo varan eimast við lægra hitastig og verður mýkri, og til upphitunar notum við eingöngu jarðhitavatn – sem skilaði okkur titlinum „Sustainable Distillery of the Year“ hjá Icons of Gin 2024.
Samstarf
Í góðum félagsskap
Við leggjum mikla áherslu á samstarf við rótgróin íslensk vörumerki. Te & Kaffi hefur verið samstarfsaðili okkar frá árinu 2019, Þristalíkjörinn gerum við í samstarfi við Kólus og Appolo Lakkrís í samstarfi við Góu.
Átöppun
Framleiðum líka fyrir aðra
Við endurnýjum tækjakostinn stöðugt fyrir nýjar vörur og erum með gífurlega öfluga átöppunarlínu með mikla afkastagetu. Við tökum gjarnan að okkur framleiðslu og átöppun fyrir önnur fyrirtæki – hafðu samband á info@distillery.is.
Verðlaun
Verðlaunað um allan heim
Vörurnar okkar hafa unnið til verðlauna í nánast hverri keppni sem þær hafa tekið þátt í, og við höfum átt áralangt samstarf við International Drinks Specialists.
Hvar fást vörurnar
Um land allt – og vestur um haf
Vörurnar okkar fást um land allt, nánast hvar sem þú leitar. Nú eru þær líka komnar til Bandaríkjanna í samstarfi við Longship Liquors.