Kokteilar & kræsingar

Uppskriftir

Kokteilar og kræsingar með vörunum okkar – frá klassískum G&T að pizzu-martini.

Ertu að halda veislu?Veislureiknivélin reiknar út flöskur, tónik, klaka og skraut fyrir gestina – og hvar það fæst.Opna reiknivélina

Njótið áfengis í hófi. Uppskriftirnar eru miðaðar við einn drykk nema annað sé tekið fram.

Rökkva-djöflaterta

Rökkvi

Rökkva-djöflaterta

Rökkvi kemur í stað kaffisins – og kakan hverfur hratt.

Hráefni

  • Botnar: 220 g hveiti
  • 180 g sykur
  • 80 g kakó
  • 2 tsk lyftiduft
  • 1 tsk matarsódi
  • 1 tsk salt
  • 2½ dl mjólk eða rjómi
  • ¾ dl bragðlítil olía
  • 2 egg
  • 1 tsk vanilludropar
  • 2½ dl Rökkvi
  • Krem: 200 g flórsykur
  • 60 g kakó
  • ½ tsk salt
  • 80 g mjúkt smjör
  • 1 msk Rökkvi eða kalt kaffi
  • 1 tsk vanilludropar
  • 5 msk rjómi

Aðferð

Hitaðu ofninn í 180°C. Blandaðu þurrefnunum saman og hrærðu svo mjólk, olíu, eggjum, vanillu og Rökkva varlega saman við – deigið er þunnt. Skiptu í tvö smurð 23 cm form og bakaðu í 20–30 mínútur, eða þar til prjónn kemur hreinn upp. Kældu. Í kremið: hrærðu þurrefnunum saman, bættu við smjöri, Rökkva og vanillu og loks rjómanum þar til kremið er mjúkt. Smyrðu á milli botnanna og yfir alla kökuna.

Skoða vörurnar →
HOVDENAKDISTILLERY

Hovdenak Distillery ehf. – Hafnarfjörður, Ísland
Kennitala: 581018-0530 – VSK-númer: 132880

Netfang: info@distillery.is
Sími: +354 566 6656

© 2026 Hovdenak Distillery · Vafrakökur